Tannréttingar sf
Tannréttingar sf

Móttökuritari á tannlæknastofu

Tannlæknastofa í Reykjavík óskar eftir móttökuritara í 85-100% starf. Á stofunni er einungis unnið við tannréttingar.

Við leitum eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er fljótur að læra og tileinka sér hlutina. Starfið felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn umsjón með bókunum og afgreiðsla skjólstæðinga
  • Ritarastörf og svörun fyrirspurna í tölvupósti
  • Samskipti við skjólstæðinga
  • Símsvörun og upplýsingagjöf
  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Góð almenn tölvukunnátta, Word, Excel, Outlook
  • Mjög góð íslenskukunnátta skilyrði, bæði töluð og rituð
  • Góð enskukunnátta
Auglýsing birt22. janúar 2025
Umsóknarfrestur2. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Snorrabraut 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar