

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbæ
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og skemmtileg störf hjúkrunar. Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl eða eftir nánara samkomulagi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heilsugæsluhjúkrunar er víðtækt. HH Seltjarnarnesi og Vesturbæ er með opna móttöku sem sinnir fólki á öllum aldri. Þá sinna hjúkrunarfræðingar bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt að svara Heilsuveruskilaboðum og einnig erindum sem ekki eru bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð ásamt heilsueflandi móttöku. Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu.
Ung og smábarnavernd eflir heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Í heilsuvernd aldraða leitast hjúkrunarfræðingur við að styðja eldra fólk til að efla og viðhalda andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði. Þjónustan felst í að greina áhættuþætti og veita fræðslu sem snerta heilsu og líðan. Hjúkrunarfræðingur veitir jafnframt ráðgjöf, leiðsögn og upplýsingar um þau þjónustuúrræði sem eru í boði.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
- Reynsla af skólahjúkrun kostur
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
























