

Ljósmóðir - Heilsugæslan Efra Breiðholt
Við leitum að ljósmóður sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 60-80% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Hjá Heilsugæslunni Efra-Breiðholti starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu og hæfni í starfi.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Megin starfssvið ljósmæðra er við meðgönguvernd, ungbarnavernd og leghálsskimanir ásamt getnaðarvarnaráðgjöf.
Meðgönguvernd
Markmið meðgönguvernd er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu. Meðgönguvernd er höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á.
Ung- og smábarnavernd
Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Heilsuvernd skólabarna felst m.a. í reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.
Leghálsskimanir
Heilsugæslunni hefur verið falin framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi og annast ljósmæður og hjúkrunarfræðingar sýnatökur vegna skimunarinnar.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsleyfi sem ljósmóðir
- Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
- Reynsla af leghálsskimunum kostur
- Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
- Góð þekking/próf í brjóstagjafaráðgjöf
- Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta













