Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Mjódd

Heilsugæslan Mjódd (HH) leitar að hjúkrunarfræðingi í 80-100% framtíðarstarf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem eru tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífeldri þróun. HH Mjódd leggur áherslu á þverfaglega og góða samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi.

Á Heilsugæslunni Mjódd eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum, hjúkrunarfræðingar, ljósmæður, hreyfistjóri, næringafræðingur ásamt sálfræðingum og riturum. HH Mjódd er ætlað að veita íbúum almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Starfsemi heilsugæslunnar er í örri framþróun þar sem áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið verður hjúkrunarmóttaka en HH Mjódd er með hjúkrunarmóttöku sem sinnir fólki á öllum aldri. Þá sinna hjúkrunarfræðingar bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt að svara Heilusveruskilaboðum og einnig erindum sem ekki eru bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð ásamt heilsueflandi móttöku. Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Faglegur metnaður
  • Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
  • Sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
  • Frumkvæði og geta starfað sjálfstætt
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð almenn tölvukunnátt
Auglýsing birt19. febrúar 2024
Umsóknarfrestur4. mars 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Þönglabakki 6, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar