Framleiðsluverkfræðingur | Manufacturing Engineer
Langar þig að vera hluti af öflugu og spennandi teymi innan stoðtækjaframleiðslu Össurar?
Össur leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að starfa sem framleiðsluverkfræðingur (e. Manufacturing Engineer) í koltrefja- og samsetningardeilinni á Íslandi. Framleiðsluverkfræðingar Össurar vinna að framleiðsluferlum stoðtækja, stöðugum umbótum og aukinni skilvirkni þeirra. Teymið er leiðandi í innleiðingu á umbótum. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og unnin í samstarfi við önnur teymi, svo sem vöruþróun, gæðadeild, innkaupadeild og vörustjóra.
Við leitum að skipulögðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir verkefnum sem bæta lífsgæði og hreyfanleika fólks.
- Vinna við stöðugar umbætur á ferlum í framleiðslu
- Innleiða nýjar lausnir sem auka skilvirkni og gæði framleiðsluferla
- Innleiða breytingar á vörum í framleiðslu
- Vinna að gæðamálum í framleiðslu
- Útbúa og viðhalda verklýsingum framleiðsluferla
- B.Sc. eða M.Sc. í verk- eða tæknifræði
- Brennandi áhugi á framleiðslu og umbótum ferla
- Þekking á straumlínustjórnun (e. Lean Manufacturing) er kostur
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
-
Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
-
Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
-
Árlegur sjálfboðaliðadagur
- Sveigjanlegur vinnutími
- Starfsþróun
-
Öflugt félagslíf