Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Sérfræðingur á Tækjabúnaðardeild

Starf sérfræðings á Tækjabúnaðardeild er laust til umsóknar. sérfræðingur hefur m.a. umsjón og eftirlit með verkefnum sem tengjast veglýsingarmálum í eigu Vegagerðarinnar og sér til þess að þau séu unnin í samræmi við áætlanir og öryggisstefnu Vegagerðarinnar.

Vegagerðin á og rekur mikið magn búnaðar og tækja í tengslum við samgöngur. Er það búnaður eins og umferðarljós, götulýsing, veðurstöðvar, myndavélar, LED upplýsingaskilti, teljarar, mengunarmælar, rafbúnaður og fjarskipti í jarðgöngum, vöktunarbúnaður ýmiskonar, vitar, öldudufl og radarsvarar svo fátt eitt sé nefnt. Auk þessa er í rekstri fjöldinn allur af kerfum til miðlunar gagna og upplýsinga.

Tækjabúnaðardeild er hluti Þjónustusviðs Vegagerðarinnar með aðsetur í Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Veglýsingin er á ábyrgð og í rekstri svæðisstöðva á hverjum stað, en Tækjabúnaðardeild sér um miðlæg kerfi, samræmingu krafna til búnaðar milli svæðisstöðva og annað vegna veglýsingarbúnaðarins og þróunar hans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og rekstur stjórnbúnaðar fyrir veglýsingarkerfið á landsvísu 
  • Stefnumótun og ráðgjöf vegna framtíðaruppbyggingar kerfisins 
  • Utan um hald og skráning veglýsingabúnaðar í GIS hugbúnaðarkerfi Vegagerðarinnar og uppfærsla við breytingar 
  • Rýni hönnunargagna og ráðgjöf til hönnuða 
  • Samskipti og samráð við verktaka sem vinna við lýsingarkerfið 
  • Verkefnastjórnun 
  • Önnur tilfallandi störf á deildinni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verk-, tækni-, eða iðnfræðimenntun á rafmagnssviði, eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Góð íslensku- og enskukunnátta. Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg
  • Góð tölvukunnátta nauðsynleg
  • Reynsla í GIS og/eða AutoCad teikniforritun æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
  • Góð öryggisvitund
Auglýsing birt18. desember 2024
Umsóknarfrestur15. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar