

Fagleg handleiðsla og starfsmannastuðningur
Landspítali óskar eftir að ráða reynslumikinn og sérhæfðan einstakling til að sinna faglegri hóphandleiðslu. Í starfinu felst handleiðsla, stuðningur og ráðgjöf fyrir starfsmenn spítalans, auk aðkomu að fræðslu. Viðkomandi mun tilheyra Stuðningsteymi Landspítala.
Við viljum ráða einstakling sem hefur menntun og þjálfun í faglegri handleiðslu, færni í hóphandleiðslu, stuðningi og ráðgjöf, er lausnamiðaður, hvetjandi og brennur fyrir eflingu einstaklinga og jákvæðri úrlausn mála. Reynsla af úrvinnslu erfiðra samskiptamála og vinna með vanlíðan af ýmsu tagi er mikill kostur sem og reynsla af stjórnun, markþjálfun, skipulagningu vinnustofa og teymisvinnu.
Stuðningsteymi starfsfólks heyrir undir rekstrar- og mannauðssvið. Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Þátttaka í Stuðningsteymi starfsfólks Landspítala, í samræmi við færni og bakgrunn
- Hóphandleiðsla
- Stuðningur, ráðgjöf og handleiðsla við einstaklinga og teymi
- Önnur tilfallandi verkefni
- Háskólamenntun sem veitir starfsréttindi t.d. innan heilbrigðis- og félagsmálasviðs, sálgæslu eða annarra skyldra greina
- Viðurkennt handleiðslunám á háskólastigi
- Reynsla af stuðningsvinnu, vinnu með líðan, handleiðslu og úrvinnslu samskiptamála á vinnustöðum
- Örugg framkoma, gott orðspor og færni í mannlegum samskiptum
- Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt








































