
Vinnumálastofnun
Hlutverk Vinnumálastofnunar
Vinnumálastofnun heyrir undir félagsmálráðuneytið og fer m.a. með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu Atvinnuleysistryggingasjóðs, Fæðingarorlofssjóðs, Ábyrgðarsjóðs launa auk fjölmargra annara vinnumarkaðstengdra verkefna.
Ráðgjafi á Austurlandi
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða ráðgjafa á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Austurlandi.
Ráðgjafi þjónustar atvinnuleitendur og atvinnurekendur með það að markmiði að vinna gegn atvinnuleysi. Í starfi sínu þarf ráðgjafi að geta beitt fjölbreyttum aðferðum og myndað tengsl við ólíka aðila til að vinna að hagsmunum atvinnuleitenda og atvinnulífs.
Starfstöð ráðgjafa er á Egilsstöðum.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn ráðgjöf og vinnumiðlun.
- Ráðgjöf við flóttamenn.
- Ráðgjöf og vinnumiðlun við fólk með skerta starfsgetu.
- Afgreiðsla og símavaktir.
- Skráningar, upplýsingamiðlun og samskipti við fræðsluaðila.
- Kynningar, starfsleitarfundir og umsjón með námskeiðum og virkniúrræðum.
- Koma á og viðhalda tengslum við fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s. á sviði náms- og starfsráðgjafar, félagsráðgjafar, þroskaþjálfunar eða annarrar menntun á félags- eða heilbrigðissviði.
- Reynsla af ráðgjöf er æskileg.
- Góð þekking á íslensku samfélagi.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góðir skipulagshæfileikar.
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og metnaður til að skila góðu starfi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál sem nýtast í starfi eru kostur.
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
Auglýsing birt22. október 2026
Umsóknarfrestur5. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Kaupvangi 3b
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (8)

Ráðgjafi á Vestfjörðum
Vinnumálastofnun

Velferðarsvið – Teymisstjóri í barnaverndarþjónustu
Reykjanesbær

Ráðgjafi heim
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjálandsskóli - náms- og starfsráðgjafi
Garðabær

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Ráðgjafi hjá Suðurhlíð - 50% starf
Suðurhlíð

Sérfræðingur á Læk - athvarfið Lækur
Hafnarfjarðarbær

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær