Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Design Transfer Engineer

Langar þig að innleiða nýjar vörur í framleiðslu hjá Össuri?

Össur leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa sem Design Transfer Engineer í tímabundið starf til eins árs. Design Transfer teymið vinnur að því að innleiða vörur úr þróun yfir í framleiðslu og færa vörur milli framleiðslustaða eða birgja. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og unnin í nánu samstarfi við önnur teymi, svo sem vöruþróun, gæðadeild, innkaupadeild og vörustjóra.

Við leitum að skipulögðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir verkefnum sem bæta lífsgæði og hreyfanleika fólks. Kostur er áhugi á að vinna með, greina og túlka teikningar (e. technical drawings) og framleiðslutækni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innleiða vörur úr þróun yfir í framleiðslu 

  • Hanna framleiðsluferli 

  • Styðja við þróun í þróunarferli nýrrar vöru  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc í verk-  eða tæknifræði  

  • Brennandi áhugi á framleiðslu og umbótum ferla  

  • Þekking á straumlínustjórnun (e. Lean) er kostur  

  • Hæfni á sviði gagna- og kostnaðargreininga  

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð  

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu  

  • Metnaður og jákvæðni  

  • Mjög góð enskukunnátta  

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

Auglýsing birt27. desember 2024
Umsóknarfrestur5. janúar 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Mjög góð
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.LeanPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar