Ert þú framtíðar CRM / Microsoft Dynamics 365 sérfræðingur?
Wise leitar að hæfileikaríkum og áhugasömum einstaklingi í vaxandi teymi sérfræðinga. Hjá Wise tekur þú þátt í ráðgjöf og þjónustu tengdum Microsoft Dynamics 365 viðskiptalausnum í skýinu, hefur aðkomu að stafrænum umbreytingaverkefnum og öðrum spennandi þróunarverkefnum, auk þátttöku í vöruþróun fyrir breiðan hóp viðskiptavina í hinum ýmsu atvinnugreinum.
Við leitum að kraftmiklum einstaklingi sem vill þróast í starfi, þrífst vel í umhverfi þar sem lögð er áhersla á samvinnu og hefur ástríðu fyrir hönnun og þróun hugbúnaðarlausna og brennur fyrir tækni.
Hjá Wise færð þú tækifæri til að
- Læra af reynslumiklum sérfræðingum Wise
- Framkvæma ferla- og þarfagreiningar fyrir viðskiptavini
- Hanna og þróa sérsniðnar skýjalausnir
- Veita ráðgjöf til viðskiptavina
- Innleiða lausnir og veita stuðning við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði upplýsingatækni eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Lausnamiðuð hugsun og rík aðlögunarhæfni
- Góð samskiptahæfni
- Rík þjónustulund
- Áhugi á tækni og þróun
- Frumkvæði í starfi
- Þekking og/eða áhugi á Microsoft Dynamics 365 lausnum
- Þekking og/eða áhugi á Microsoft Power Platform
- Forritunarkunnátta
Reynsla eða þekking á einhverju eftirtöldu er kostur:
- C#
- Javascript
- Typescript
- PowerShell
- Power Apps
- Power Automate
- Notkun á Azure þjónustum
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Tekið er á móti umsóknum til og með 19. janúar 2025. Frekari upplýsingar veita Gunnar Örn Haraldson, Tech Lead 365 (gunnaroh@wise.is) og Harpa Hrund Jóhannsdóttir, á mannauðssviði (harpah@wise.is).