Akademias
Akademias
Akademias

Tilfinningagreind, starfsfólk og stjórnendur

Tilfinningagreind (EQ) er í dag ein eftirsóknarverðasta leiðtogahæfnin. EQ hjálpar þér að byggja upp árangursrík teymi, halda streitu í lágmarki og að eiga í góðu samstarfi við aðra. Að skapa öruggt lærdómsumhverfi sem gerir starfsfólki kleift að blómstra og ná hámarksárangri. Í þessu námskeiði mun Aðalheiður leiða þig í sannleikann um hvað tilfinningagreind er og hvers vegna hún er okkur svona mikilvæg. Ferðalagið hefst á því að skoða hvað liggur á bak við tilfinningaviðbrögð okkar, áður en kafað er ofan í 4 stoðir tilfinningagreindar og verkfæri sett fram til þess að hefja þjálfun hennar. Í þessu námskeiði höldum við okkur ekki á yfirborðinu, heldur förum alla leið niður að rótinni. Hefur þú hugrekki til þess að horfa í spegilinn?

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • viti hvað tilfinningagreind er og hvað það er sem liggur á bakvið tilfinningar
  • viti kosti þess að þekkja eigin sjálfsvitund, sjálfsstjórnun og félagsvitund
  • þekki inn á tengslastjórnun og viti mikilvægi þess að sýna sjálfum sér mildi í daglegu lífi

 

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir alla þá sem eru forvitnir um hugtakið tilfinningagreind og hvaða áhrif hún hefur á okkar sjálfsmynd og samskipti við aðra. Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi tilfinningagreindar fyrir stjórnendur sem bera ábyrgð á fyrirtækjamenningu og velferð starfsfólks.



Námskaflar og tími:
  • Tilfinningagreind (EQ) fyrir stjórnendur - 3 mínútur
  • Hvað er tilfinningagreind - 6 mínútur
  • Hvað liggur á bak við tilfinningar - 10 mínútur
  • Sjálfsvitund - 13 mínútur
  • Sjálfsstjórnun - 14 mínútur
  • Félagsvitund - 7 mínútur
  • Tengslastjórnun - 8 mínútur
  • Hvað nú - 4 mínútur
Heildarlengd:
65 mínútur

Textun í boði:
Enska og íslenska

Leiðbeinandi:

Aðalheiður Sigurðardóttir

Aðalheiður Sigurðardóttir er fyrirlesari og ráðgjafi sem mætir alltaf með ástríðuna að vopni. Hún er með MSc. og BSc. í stjórnun og markaðsmálum frá Háskóla Íslands og hefur áralanga stjórnendareynslu, bæði á Íslandi og í Noregi. Árið 2022 útskrifaðist hún úr 3ja ára námi í Tilfinningaráðgjöf frá EQ Institute í Osló. Aðalheiður hefur starfað sem ráðgjafi og fyrirlesari frá árinu 2015 í gegnum fyrirtækið sitt, Ég er unik og hefur sérþekkingu á tengslamyndun, tilfinningagreind og taugakerfinu. https://www.egerunik.is/
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
24 000 kr.
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie