Akademias
Akademias
Akademias

Meðvirkni, orsök og afleiðingar

Á þessu vinsæla námskeiði er meðvirknin útskýrð á máta sem þú hefur ekki séð áður. Á námskeiðinu færðu góða yfirsýn yfir birtingarmyndir og einkenni meðvirkninnar og hverjar raunverulegar orsakir hennar eru. Meðal þess sem farið er yfir er greiningarmódel Piu Mellody sem rannsakað hefur meðvirknina og gefið út nokkrar bækur um hana. Fjallað er um áföll í samskiptum í uppvextinum (e. relational trauma) og tengsl þeirra við meðvirka hegðun.  Þá er einnig fjallað um leiðir sem mælt er með til þess að vinna úr einkennum meðvirkninnar.  

 

Fyrir hverja?

Alla sem eiga í samskiptum við annað fólk.

 



Námskaflar og tími:
  • Inngangur og yfirlit - 3 mínútur
  • Saga meðvirknihugtaksins - 6 mínútur
  • Einkennalistar - 9 mínútur
  • Orsakir meðvirkni - 22 mínútur
  • Meðvirknimódel - Verðmæti - 18 mínútur
  • Meðvirknimódel - Viðkvæm - 5 mínútur
  • Meðvirknimódel - Háð - 3 mínútur
  • Meðvirknimódel - Ófullkomin og hvatvís - 7 mínútur
  • Tekist á við vandamál - 6 mínútur
  • Lausnir - 6 mínútur
Heildarlengd:
85 mínútur

Textun í boði:
Íslenska

Leiðbeinandi:

Valdimar Þór Svavarsson

Valdimar Þór Svavarsson er ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu, ráðgjafarþjónustu. Valdimar er með MS gráðu í stjórnun og stefnumótun og BA gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Hann er sérfræðimenntaður í áfalla- og uppeldisfræðum Piu Mellody, sem fjalla um áföll í samskiptum í uppvextinum sem hafa áhrif á mótun okkur síðar meir, í daglegu tali kallað meðvirkni. Valdimar er einnig með ACC vottun sem markþjálfi og teymisþjálfi. Hann hefur víðtæka reynslu af vinnu með stjórnendum og öðru starfsfólki fyrirtækja og stofnana í tengslum við samskipti, starfsanda og virðingu á vinnustað. Valdimar veitir einnig viðtalstíma fyrir einstaklinga, hjón og pör. Nánari upplýsingar á www.fyrstaskrefid.is
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
14 000 kr.
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie