Akademias
Akademias
Akademias

Betri svefn með Dr. Erlu Björnsdóttur

Dr. Erla Björnsdóttir fer yfir hvað er að gerast í líkama og sál þegar við sofum og hvers vegna svefn er okkur svona mikilvægur.
Hún ræðir um hversu mikið við þurfum að sofa, áhrifin sem það hefur á okkur ef við sofum ekki nóg og hvernig við getum brugðist við svefnleysi.
Í lokin fer hún yfir mikilvægar svefnvenjur sem gott er að venja sig á.
 

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • Geti skoðað eigin svefngæði og svefnþörf, þekki sína eigin líkamsklukku og hvað þarf að gera til að sporna við svefnleysi

  • Þekki góðar svefnvenjur og að sjá hvernig streita getur haft mikil áhrif á svefninn okkar

  • Þekki hvernig breytingaskeiðið getur haft áhrif á svefninn okkar sem og tíðahringur og áhrif hormóna

 

Fyrir hverja?

Alla sem eru að fást við þá áskorun að vera manneskja og vilja bæta líðan sína í lífi og starfi. 


Námskaflar og tími:
  • Svefngæði og svefnþörf - 7 mínútur
  • Líkamsklukkan - 8 mínútur
  • Svefnleysi - 5 mínútur
  • Góðar svefnvenjur - 7 mínútur
  • Svefn og streita - 7 mínútur
  • Breytingaskeiðið og svefn (viðbót) - 5 mínútur
  • Tíðahringur og áhrif hormóna (viðbót) - 6 mínútur
Heildarlengd:
45 mínútur

Textun í boði:
Enska og íslenska

Leiðbeinandi:

Dr. Erla Björnsdóttir

Dr. Erla Björnsdóttir er sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum. Erla hefur sérhæft sig í rannsóknum, greiningu og meðferð á svefni og svefnvanda og er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns.
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
24 000 kr.
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie