Akademias
Akademias
Akademias

Sambönd sem kæfa

Á þessu áhugaverða námskeiði er fjallað um þessar birtingamyndir sem tengjast mjög áhugaverðum fræðum sem heita ástarþrá og ástarforðun (e. Love addiction / Love avoidant). Farið er yfir orsakir þess að margir leita í raun aftur og aftur í samskonar týpur og sambönd sem breytast úr mjög góðri upplifun yfir í mjög erfiða og sársaukafulla.
 

Fyrir hverja? 

Alla sem tengja við þá upplifun að vera að kafna í nánum samböndum eða upplifa djúpstæðan ótta við tilhugsunina að verða hafnað eða yfirgefin í sambandi.  



Námskaflar og tími:
  • Inngangur og yfirlit - 3 mínútur
  • Hvað er ást og hvað gerir hún fyrir okkur - 7 mínútur
  • Getur ást farið í öfgar - 11 mínútur
  • Ástarþrá og ástarforðun - 10 mínútur
  • Dansinn - 14 mínútur
  • Leiðir til lausna - 5 mínútur
Heildarlengd:
50 mínútur

Textun í boði:
Enska og íslenska

Leiðbeinandi:

Valdimar Þór Svavarsson

Valdimar Þór Svavarsson er ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu, ráðgjafarþjónustu. Valdimar er með MS gráðu í stjórnun og stefnumótun og BA gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Hann er sérfræðimenntaður í áfalla- og uppeldisfræðum Piu Mellody, sem fjalla um áföll í samskiptum í uppvextinum sem hafa áhrif á mótun okkur síðar meir, í daglegu tali kallað meðvirkni. Valdimar er einnig með ACC vottun sem markþjálfi og teymisþjálfi. Hann hefur víðtæka reynslu af vinnu með stjórnendum og öðru starfsfólki fyrirtækja og stofnana í tengslum við samskipti, starfsanda og virðingu á vinnustað. Valdimar veitir einnig viðtalstíma fyrir einstaklinga, hjón og pör. Nánari upplýsingar á www.fyrstaskrefid.is
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
9000 kr.
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie