Akademias
Akademias
Akademias

Hvað liggur á bakvið erfiða hegðun

Á námskeiðinu skoðum við hugtakið hegðun með nýjum gleraugum, í takt við þá hugarfarsbreytingu sem á sér stað í heiminum í dag. Sú breyting er tilkomin með aukinni þekkingu á taugakerfinu og heilaþroska barna. Við svörum spurningum eins og; Hvað gerist innra með börnum sem eiga erfitt og hverjir eru áhrifavaldarnir á taugakerfi í uppnámi? Með þeirri þekkingu er auðveldara að svara algengustu spurningunni; hvernig get ég aðstoðað svo að sjálfsmynd barnsins styrkist?

 

 

Fyrir hverja?

Alla þá sem láta sér velferð barna varða og eru áhugsamir um hvernig eigi að aðstoða barn sem ekki líður vel.



Námskaflar og tími:
  • Hvað liggur á bakvið erfiða hegðun - 70 mínútur
Heildarlengd:
70 mínútur

Textun í boði:
Íslenska

Leiðbeinandi:

Aðalheiður Sigurðardóttir

Aðalheiður Sigurðardóttir er fyrirlesari og ráðgjafi sem mætir alltaf með ástríðuna að vopni. Hún er með MSc. og BSc. í stjórnun og markaðsmálum frá Háskóla Íslands og hefur áralanga stjórnendareynslu, bæði á Íslandi og í Noregi. Árið 2022 útskrifaðist hún úr 3ja ára námi í Tilfinningaráðgjöf frá EQ Institute í Osló. Aðalheiður hefur starfað sem ráðgjafi og fyrirlesari frá árinu 2015 í gegnum fyrirtækið sitt, Ég er unik og hefur sérþekkingu á tengslamyndun, tilfinningagreind og taugakerfinu. https://www.egerunik.is/
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
24 000 kr.
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie