Akademias
Akademias
Akademias

Textaskrif fyrir vefsíður til að ná árangri á Google

Við setjum upp vefsíður til að fólk geti nálgast upplýsingar og jafnvel framkvæmt ýmsar aðgerðir. Til að setja upplýsingarnar fram á sem bestan máta er nauðsynlegt að skilja notendur okkar; hvaða fólk notar vefsíðuna, til hvers og af hverju? Ennfremur að hafa í huga þá þætti sem skipta máli fyrir Google og leitarvélabestun. Þá getum við hafist handa að skrifa texta, með okkar rödd og tón, á sem auðskiljanlegastan hátt.

Berglind Ósk er notendamiðaður textasmiður sem leiðir okkur í gegnum bestu leiðir til að skrifa góðan texta fyrir vefinn.

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
  • skilji hvað notendamiðuð textasmíði er og viti hver algengustu mistök við textaskrif á vefnum eru oftast
  • öðlist skilning á hvernig maður skilgreinir rödd og tón er kemur að skrifum

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • skilji hvað notendamiðuð textasmíði er og viti hver algengustu mistök við textaskrif á vefnum eru oftast
  • öðlist skilning á hvernig maður skilgreinir rödd og tón er kemur að skrifum
  • þekki hvað efnisleiðarvísir er þegar skrif eru framkvæmd og læri helstu ráð fyrir frágang á texta fyrir vefinn



Fyrir hverja?
Námskeiðið gagnast öllum sem þurfa að skrifa texta sem birtist á vefnum eða koma á einhvern hátt að efni sem birtist á vef. 



Námskaflar og tími:
  • Kynning - 1 mínúta
  • Notendamiðuð textasmíði - 13 mínútur
  • Rödd og tónn - 5 mínútur
  • Dæmi - ofbeldisgátt 112.is - 5 mínútur
  • Að lokum - 3 mínútur
Heildarlengd:
27 mínútur

Textun í boði:
Enska og íslenska

Leiðbeinandi:

Berglind Ósk Bergsdóttir

Berglind Ósk er tölvunarfræðingur og rithöfundur sem starfar sjálfstætt sem notendamiðaður textasmiður. Verkefni sem Berglind Ósk hefur komið að eru meðal annars 112.is (ofbeldisgátt), spjallmenni fyrir TM og vefur Hafnarfjarðarbæjar.
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
24 000 kr.
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie