

Fordómar á vinnustaðnum
Námskeiðið er hugsað sem hugvekja um fordóma í íslensku samfélagi, námskeið sem gagnast öllum sem vinna með fjölbreyttum hópi fólks eða með fjölbreyttan hóp viðskiptavina.
Um fjórðungur einstaklinga sem búa á Íslandi eru einstaklingar með einhverjar erlendar rætur eða tengsl við önnur lönd. Því er mikilvægt að átta sig á þeim hindrunum sem geta mætt einstaklingum af erlendum uppruna hérlendis og skilja hvaða áhrif fordómar í samfélaginu geta haft á þessa einstaklinga.
Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi
þekki hvað fordómar eru og hver getur upplifað fordóma og þekki muninn á Kynþátta- og menningarfordómum
skilji hvernig fordómar í íslensku samhengi birtast
öðlist góða innsýn í hugtakið fkordómar: einstök atvik eða síendurtekið áreiti? Hverni þeir birtast á íslenskum vinnumarkaði
skilji afleiðingar fordóma á andlega og líkamlega líðan einstaklinga
þekki hugtökin Fjölbreytileiki og inngilding - hvar liggur munurinn?
Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir allt fólk sem starfar á íslenskum vinnumarkaði, hugsað fyrir stjórnendur en hentar öllu starfsfólki.
Námskaflar og tími:
- Kynning - 3 mínútur
- Hvað eru fordómar? - 11 mínútur
- Kynþátta- og menningarfordómar - 4 mínútur
- Birtingarmyndir fordóma - 4 mínútur
- Áhrif fordóma - 3 mínútur
- Fordómar á vinnumarkaði - 4 mínútur
- Fjölbreytileiki og inngilding - 3 mínútur
- Samantekt - 2 mínútur
34 mínútur
Textun í boði:
Enska, íslenska, pólska og víetnamska
Leiðbeinandi:
Miriam Petra Ómarsdóttir Awad
Miriam Petra Ómarsdóttir Awad hefur verið virk í baráttunni gegn fordómum á Íslandi í hartnær áratug og var tilnefnd til samfélagsverðlauna Fréttablaðsins í flokknum Atlaga gegn fordómum, árið 2015. Árið 2020 útskrifaðist Miriam með MA í hnattrænum fræðum, þar sem áherslusviðið var mannfræði og vann hún lokarannsókn sína, um áhrif fordóma á sjálfsmyndir íslenskra kvenna með erlendan bakgrunn, undir leiðsögn Kristínar Loftsdóttur prófessors. Frá byrjun ársins 2021 til dagsins í dag hefur Miriam haldið fræðsluerindi fyrir hátt í 1.500 börn, unglinga og fullorðna í skólum og æskulýðsstarfi. Upphaflega hélt Miriam fræðsluerindin ásamt Chanel Björk Sturludóttur, stofnanda Mannflórunnar, en frá haustinu 2022 hefur Miriam haldið fræðsluerindi á eigin vegum. Miriam hefur haldið vinnustofur fyrir jafningjafræðara, æskulýðsstarfsfólk og stjórnendur á skóla og frístundasviði. Miriam er inngildingar- og fjölbreytileikafulltrúi Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og hefur í því starfi farið fyrir teymi landskrifstofunnar um mótun stefnu og aðgerðaráætlunar í inngildandi starfsemi. Hún hefur einnig haldið fyrirlestra fyrir samstarfsfólk í evrópskum áætlunum um inngildingu og fordóma, meðal annars á ráðstefnunni Learning by leaving sem haldin var á Mallorca í október 2022 og fyrir æskulýðsstarfsfólk víðsvegar um Evrópu á fyrirlestrarröð á vegum SALTO Inclusion & Diversity.