

Landspítali
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að veitt sé framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.


Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið. Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum. Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti. Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best. Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.


Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með rúmlega 30 þúsund íbúa og um um 2500 starfsfólk sem sinna fjölbreyttum störfum á um 70 starfsstöðvum um allan bæ. Mannauðurinn er okkur dýrmætur. Lögð er áhersla á að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Við viljum vera áhugaverður og góður vinustaður og árangur okkar er undir reyndu og hæfileikaríku fólki kominn. Við leggjum áherslu á að skapa starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að efla þekkingu sína, hefur tækifæri til þróunar og fái hvatningu til að sýna frumkvæði og njóta sín í starfi sem skilar sér í aukinni starfsánægju og góðri þjónustu við bæjarbúa. Við erum heilsueflandi vinnustaður og viljum að öllum líði vel í vinnunni og bæði stjórnendur og starfsfólk leggja sitt að mörkum við að ýta undir og skapa sem best vinnuumhverfi á öllum okkar starfsstöðvum. Ef þú hefur áhuga á að bætast í hóp starfsmanna hjá Hafnarfjarðarbæ þá hvetjum við þig til að senda inn umsókn.


NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál. Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana. Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.


Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað. Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum. Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns. Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.


Mosfellsbær
Mosfellsbær er sjöunda stærsta bæjarfélag á Íslandi með rúmlega 14.000 íbúa. Sveitarfélagið er staðsett í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Mosfellsbær byggir þjónustu sína á áhugasömu og hæfu starfsfólki sem hefur tækifæri til að rækta þekkingu sína og færni í jákvæðu starfsumhverfi. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Hjá Mosfellsbæ starfa um 1200 starfsmenn. Fjölskylduvæn og sveigjanleg mannauðsstefna styður við þá hugmyndafræði að Mosfellsbær sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem atvinna og fjölskylduábyrgð fara saman. Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag sem miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu, en verkefninu er ætlað að ná til allra aldurshópa í samfélaginu, bæði íbúa og starfsmanna.


Tesla
Tesla is accelerating the world’s transition to sustainable energy. We design, manufacture, sell and service the world’s best solar technology, energy storage systems, and electric vehicles, providing customers the opportunity to generate, store and consume energy entirely sustainably. Tesla is committed to hiring and developing top talent from around the world for any given discipline. Based in California, Tesla’s workforce spans across four continents. We work to build an inclusive environment in which all people, regardless of gender, race, religion, or background, can come to do their best work. Our world-class teams operate with a non-conventional philosophy of inter-disciplinary collaboration. Each member of the team is expected to challenge and to be challenged, to create, and to innovate. We’re tackling the world’s most difficult and important problems—and we wouldn’t succeed without our shared passion for making the world a better place.


Leikskólar Kópavogsbæjar
Kópavogsbær rekur 21 leikskóla í bæjarfélaginu. Heildarfjöldi starfsfólks leikskóla bæjarins er rúmlega 700. Starf í leikskóla er fjölbreytt og skemmtilegt og enginn dagur er eins. Í leikskólum Kópavogs er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun og að mæta þörfum hvers barns. Vel er tekið á móti nýju starfsfólki leikskóla og því veitt markviss starfsþjálfun til að skapa vellíðan og virðingu fyrir starfinu. Í leikskólum Kópavogs er um 33% starfsfólks leikskólakennaramenntað. Fleiri munu bætast í hópinn á næstunni þar sem fjöldi starfsfólks stundar nám í leikskólakennarafræðum með styrk frá bænum. Starfsfólk er hvatt til að sækja um námsstyrki en í boði er styrkur til náms í leikskólakennarafræðum í allt að 7 ár, auk styrks til að stunda leikskólaliðanám í framhaldsskólum. Starfsfólk leikskóla getur sótt um forgang í leikskóla fyrir börnin sín auk þess að fá 40% afslátt af leikskólagjöldum. Starfsfólk leikskóla fær fríar máltíðir og borðar með börnunum. Allt fastráðið starfsfólk Kópavogsbæjar á rétt á líkamsræktarstyrk. Leikskólar Kópavogs loka flestir milli jóla og nýárs, í dymbilviku og vetrarleyfum og þá býðst starfsfólki að taka út hluta af uppsafnaðri vinnutímastyttingu. Ávallt eru þó opnir tveir leikskólar eða fleiri í samræmi við fjölda barna sem kjósa að vera í leikskóladvöl þessa daga. Leikskólar Kópavogs vinna markvisst að innleiðingu Barnasáttmálans í öllu sínu starfi. Fimm leikskólar í Kópavogi voru fyrstu leikskólar í heiminum til að innleiða réttindaleikskóla Unicef og fleiri leikskólar í bænum vinna nú að verkefninu. Kópavogsbær er einnig annað tveggja sveitarfélaga á landinu sem er viðurkennt barnvænt sveitarfélag Unicef. Allir leikskólar í Kópavogi hafa innleitt vináttuverkefni Barnaheilla.


Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu. Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu. Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín. Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.


BL ehf.
BL er eitt stærsta og elsta bílaþjónustufyrirtæki landsins og nær saga okkar allt aftur til ársins 1954. Á þeim tíma hafa bílar og bílaframleiðsla breyst gríðarlega og sjaldan hefur þróunin verið jafn spennandi og einmitt núna þegar nýir möguleikar eru að opnast til að koma okkur hratt og örugglega milli staða í sem mestri sátt við umhverfið og náttúruna. Á fimm starfsstöðvum rekum við umboð fyrir fólks- og atvinnubíla frá 12 framleiðendum og starfrækjum vottuð þjónustu-, málningar- og réttingaverkstæði sem eru ein þau fullkomnustu á landinu. Við leggjum áherslu á góða starfsaðstöðu og starfsanda og hjá okkur er öflugt starfsmannafélag. BL er með jafnlaunavottun og við erum fyrirmyndarfyrirtæki VR. Hvort sem þú leitar að tímabundnu starfi eða hyggur á fagmenntun til framtíðar þá færðu frábært tækifæri hjá BL til að kynnast nýjustu tækni og öðlast reynslu í einhverri mikilvægustu og fjölbreyttustu atvinnugrein samtímans í návígi við marga af fullkomnustu og glæsilegustu bílum heims.


Bifvélavirki
Bifvélavirki Viltu starfa á einu af verkstæðum BL? Við hjá BL leitum að metnaðarfullum og þjónustuliprum bifvélavirkjum til að ganga til liðs við öflugt teymi okkar. BL rekur fjögur verkstæði; Hyundai í Kauptúni, Land Rover á Hesthálsi, á Sævarhöfða og í Askalind Kópavogi (Stimpill) – og er því hægt að sækja um starf á því verkstæði sem hentar þér best. Á öllum verkstæðum okkar er boðið upp á bjarta, glæsilega og vel búna vinnuaðstöðu þar sem lögð er áhersla á vandaða þjónustu, öfluga samvinnu og jákvæð samskipti. Við leggjum ríka áherslu á símenntun og að starfsfólk okkar haldi í við hraðar tæknibreytingar í greininni, með aðgangi að nýjustu tækni og búnaði samkvæmt stöðlum framleiðenda. Við viljum fá til liðs við okkur einstaklinga sem hafa áhuga á að skara fram úr í faginu og vilja taka þátt í því að skapa hvetjandi og skemmtilegt starfsumhverfi. Ef þetta hljómar eins og eitthvað fyrir þig, þá hvetjum við þig til að sækja um með því að senda inn umsókn hér!


Slökkvilið Fjarðabyggðar
Slökkvilið Fjarðabyggðar sinnir mikilvægu hlutverki í öryggis- og neyðarþjónustu sveitarfélagsins og er ávallt reiðubúið til að bregðast skjótt við þegar hættu ber að höndum. Hlutverk þess er að vernda líf, umhverfi og eignir samkvæmt lögum um brunavarnir. er með starfstöðvar í sex byggðarkjörnum þar sem atvinnulið starfar samhliða hlutastarfandi slökkviliðs- og sjúkraflutningsmönnum.


Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu. Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar. Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.


Lyfja
Lyfja er eitt elsta einkarekna apótek landsins en fyrirtækið hóf starfsemi sína með opnun Lyfju Lágmúla 1996. Í dag rekur Lyfja rúmlega 40 apótek og útibú um allt land. Hjá Lyfju starfa í kringum 430 starfsmenn sem eiga það sameiginlegt að vera umhugað um þína vellíðan. Við erum með ólíkan bakrunn og menntun s.s. lyfjafræðingar, lyfjatæknar, förðunarfræðingar, snyrtifræðingar, hjúkrunarfræðingar og viðskiptafræðingar. Meðalaldur starfsfólk er 40 ár og meðalstarfsaldur er rúm 5 ár. Fagmennska skiptir okkur öllu máli og því er öflugt fræðslustarf fyrir starfsmenn til að auka þekkingu og færni. Það skiptir okkur máli að starfsmenn Lyfju fái að þróast og vaxa hjá okkur. Haustið 2015 fékk Lyfja jafnlaunavottun VR og í febrúar 2018 fékk Lyfja síðan jafnlaunavottun Velfarnaðarráðuneytisins og var á meðal 20 fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að öðlast þá vottun.


Leikskólinn Lyngholt
Leikskólinn Lyngholt er sex deilda leikskóli fyrir börn á aldrinum 1-6 ára og er opnunartími skólans er 7:45- 16:15 alla virka daga. Leikskólinn starfar í anda Uppbyggingarstefnunnar og með ART. Ásamt vinnu með farsæld barna í samvinnu við Fjarðabyggð. ,,Allir geta eitthvað, enginn getur allt" eru einkunnarorð skólans og leiðarljós okkar í öllu starfi. Því fær hver og einn notið sinna styrkleika því þannig byggjum við upp sterka sjálfsmynd. Við sem erum í Lyngholti erum sjálfstæð og glöð og berum virðingu fyrir umhverfi okkar. Við tileinkum okkur jákvæðni, gleði, hreinskiptni og virðingu.


Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar samanstanda af íþróttahúsum í hverjum kjarna, sundlaugum, Fjarðabyggðarhöllinni og skíðasvæðinu í Oddsskarði. Í Fjarðabyggð eru fimm íþróttamiðstöðvar ásamt Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Íþróttamiðstöðvarnar eru nýttar sem skólamannvirki, til æfinga og fyrir almenning. Í sveitarfélaginu eru einnig glæsilegar útisundlaugar á Norðfirði og Eskifirði, með heitum pottum, sundrennibrautum og frábærri aðstöðu. Á Fáskrúðsfirði er notaleg innilaug með heitum útipotti. Á Stöðvarfirði og í Breiðdal eru litlar útilaugar ásamt heitum pottum í fallegu umhverfi. Skíðasvæðið Oddsskarð er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Á skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu.


Íslandssjóðir
Íslandssjóðir stýra 23 sjóðum fyrir almenna fjárfesta og 8 sérhæfðum sjóðum. Íslandssjóðir stýra eignum sem nema um 387 milljörðum króna og um 12.000 sparifjáreigendur og fjárfestar hafa valið að ávaxta eignir sínar í sjóðum í rekstri Íslandssjóða. Íslandssjóðir starfrækja úrval hlutabréfasjóða og blandaðra sjóða og er stærstir í rekstri skuldabréfasjóða á Íslandi bæði þegar horft er til fjölda sjóða og eigna í stýringu. Íslandssjóðir hafa auk þess sérhæft sig í fasteignasjóðum, framtakssjóðum og lánasjóðum.


Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki með langa og sterka sögu sem nær aftur til ársins 1875. Við vinnum daglega að því að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með traustum rekstri, fagmennsku og mannlegri nálgun. Hlutverk okkar er að vera hreyfiafl til góðra verka, þannig að viðskiptavinir okkar geti náð árangri til lengri tíma. Með skýra framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu vinna þrjár viðskiptaeiningar bankans náið saman að því markmiði að byggja og viðhalda sterkum, sjálfbærum viðskiptasamböndum. Mannauðsstefna Íslandsbanka byggir á þeirri framtíðarsýn að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Við leggjum áherslu á faglegt ráðningarferli, öfluga móttöku nýliða, fræðslu og starfsþróun, auk heilsu, vellíðanar og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Jafnrétti, fjölbreytni og mannréttindi eru grundvallaratriði í allri okkar starfsemi Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem deila ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini af metnaði, framsækni og fagmennsku. Við leggjum ríka áherslu á að skapa virði til framtíðar með framúrskarandi þjónustu, samvinnu og ábyrgri starfsemi.


Heimaþjónusta Fjarðabyggðar
Fjarðabyggð veitir fjölbreytta þjónustu sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að auknum lífsgæðum íbúa. Sveitarfélagið leggur áherslu á að eldra fólk geti búið sjálfstætt sem lengst. Eldra fólk er fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir. Í boði er félagsstarf og fjölbreyttur stuðningur í gegnum heimaþjónustu.


Festi
Festi á og rekur fyrirtæki sem eru leiðandi hvert á sínum markaði; matvöru-, raftækja-, lyfja- og heilsuvöru-, eldsneytis-, raforkusölu- og þjónustustöðvamarkaði. Fasteigna- og vöruhúsarekstur og kaup og sala verðbréfa er einnig hluti af starfsemi samstæðunnar. Móðurfélagið Festi á dótturfélögin Krónuna sem rekur samnefndar matvöruverslanir, N1 sem rekur þjónustustöðvar eldsneytis- og rafmagnssölu og ýmsa þjónustu tengda smur- og bifreiðaþjónustu, ELKO sem er stærsta raftækjaverslun landsins, Lyfju sem starfrækir 45 apótek og útibú, Yrkir sem á og rekur fasteignir samstæðunnar og Bakkann vöruhótel sem sérhæfir sig í vöruhúsaþjónustu og dreifingu.


Embla Medical | Össur
Össur var stofnað á Íslandi árið 1971 og er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Markmið okkar er að bæta hreyfanleika fólks og gera því kleift að lifa lífinu án takmarkana. Embla Medical var stofnað árið 2024 til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins í heilbrigðistækni. Vörumerkin Össur, College Park, Fior & Gentz og ForMotion tilheyra öll Emblu Medical. Við erum leiðandi afl á heimsvísu með um 4.500 starfsmenn í yfir 40 löndum. Höfuðstöðvarnar eru á Íslandi en starfsstöðvar víða um heim sinna vaxandi markaði. Félagið er skráð á hlutabréfamarkað í Danmörku. Mannauðurinn er kjarninn í okkar árangri. Sem hátæknifyrirtæki leggjum við ríka áherslu á að laða að okkur hæft og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur sig fram og sýnir frumkvæði.