Akademias
Akademias
Akademias

Öndunartækni

Nú þegar langvarandi streita, kvíði, svefntruflanir, sjálfsofnæmissjúkdómar, kulnun og aðrir 
kvíðatengdir kvillar verða æ algengari út um allan heim er kominn tími til að leita aftur í grunninn og gera grundvallarbreytingar fyrir fullt og allt. 
 

Markmið námskeiðsins er m.a. að nemandi

  • finni jafnvægi líkamlega, andlega og tilfinningalega og noti samsetningu af því sem við vitum að virkar til þess að ná því besta úr hverjum andardrætti.
  • fái verkfærin og skilninginn svo hann nái tökum á eigin iðkun
  • nái að uppgötva það að iðka öndunartækni, þjálfa hana og verða meðvitaður/uð um eigin andardrátt er í grunninn mikilvægari þáttur í að hlúa að sjálfum sér en líkamsrækt eða mataræði. 
 

Fyrir hverja? 

Fyrirlesturinn er ætlaður öllum sem vilja fá betri skilning á mikilvægum andlegum og líkamlegum heilsufarslegum ávinningi þess að anda rétt, draga úr veikindum, streitu og auka einbeitingu og frammistöðu. 



Námskaflar og tími:
  • Öndunartækni - 16 mínútur
  • Mótun öndunaraðferðar - 8 mínútur
  • Dæsið - 16 mínútur
  • Byrjum á byrjuninni - 6 mínútur
  • Samantekt - 1 mínúta
Heildarlengd:
47 mínútur

Textun í boði:
Enska og íslenska

Leiðbeinandi:

Andri

Andri er stofnandi ANDRI ICELAND, heilsu- og vellíðunarþjálfunarstöðvar sem beitir krafti kuldameðferðar, öndunaræfinga, hitameðferðar og hugarorku, ásamt öðrum vísindalega sönnuðum aðferðum. Með faglega þjálfun og viðurkenningar frá heimsþekktum höfundum, þjálfurum og kennurum á sviði Lifestyle Medicine og Mind-Body aðferðra. Hjá ANDRI ICELAND eru þættirnir kuldi, hiti, öndun og hugur sameinaðir til að styrkja náttúrulegar varnir, bæta efnaskipti og ná jafnvægi milli líkama og huga. Þessi heildstæða nálgun hentar öllum, hvort sem er fyrir þá sem vilja vinna gegn nútíma lífsstílssjúkdómum eða þá sem leitast við að ná hámarks heilsu og vellíðan. Með því að efla vellíðan eins og náttúran ætlaði, er unnið að því að opna fyrir fullan mannlegan möguleika.
Rodzaj
Nauka zdalna
Cena
24 000 kr.
Podziel się
Wyślij do Messengera
Podziel się z innymi
Skopiuj link
Kategorie