

Skrifstofustjóri - Engidalsskóli
Engidalsskóli auglýsir eftir skrifstofustjóra
Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi. Skrifstofustjóri starfar sem aðstoðarmaður skólastjóra um almennan rekstur skólans og starfar náið með stjórnendateymi skólans.
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir um áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk.
Í Engidalsskóla fögnum við fjölbreytileikanum og áhersla er lögð á vellíðan nemenda og starfsmanna og er leiðarljós skólans ábyrgð, virðing og vellíðan.
Helstu verkefni skrifstofustjóra:
- Umsjón og ábyrgð á daglegum rekstri skrifstofu og ber ábyrgð á samskiptum skóla við þá sem eiga erindi við hana
- Umsýsla ráðningasamninga og samskipti við launadeild
- Umsjón með vinnustund og starfsmannahaldi
- Umsjón með skráningu nemenda, forfallaskráningu og skipulagi forfalla
- Sér um skipulag og stjórnun skjalavörslu
- Sér um pantanir á ýmsum gögnum sem nauðsynleg eru rekstri skólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar – og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi (B.A./B.S./B.Ed gráða)
- Áhugi á mannauðstengdum verkefnum
- Mjög góð þekking og reynsla af skrifstofustörfum
- Mjög góð tölvukunnátta
- Þekking á Kjarna og Vinnustund kostur
- Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
- Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
- Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
- Lipurð í samskiptum og samstarfshæfni
- Stundvísi og samviskusemi
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2025.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, í síma 8621855 eða í gegnum netfangið [email protected].
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.












































