

Starfsmaður við félagsstarf eldri borgara - Hraunsel - 50% staða
Langar þig að vinna á líflegum vinnustað?
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðarbæjar óskar eftir starfsmanni í 50% stöðu í Hraunsel, félagsstarf eldri borgara. Vinnutíminn er 12-16 þrjá daga í viku og 13-17 tvo daga í viku. Um afleysingarstöðu til eins árs er að ræða.
Í félagsstarfi eldri borgara í Hafnarfirði er í boði metnaðarfull og fjölbreytta dagskrá fyrir eldri borgara.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Samskipti og samvinna við þá sem sækja félagsstarfið.
- Samstarf við nefndir og stjórn innan félags eldri borgara í Hafnarfirði.
- Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
- Undirbúningur húsnæðis fyrir mismunandi virkni
- Tekur þátt í undirbúningi, framkvæmd og frágangi vegna veitingasölu
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af félagsstarfi og/eða félagsstarfi eldri borgara kostur
- Jákvætt viðmót og þjónustulund
- Góð samskipta- og samtarfshæfni
- Góð íslenskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Nánari upplýsingar veita Linda Hildur Leifsdóttir verkefnastjóri félagsstarfs eldri borgara [email protected] eða í síma 5550142 eða Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri þjónustu og úrræða [email protected].
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 30.3.2025
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.































