Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Skapandi sumarstörf

Í sumar býðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára (fæddir 2000-2007) að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Einstaklingar og hópar fá tækifæri til að starfa í sumar við að sinna skapandi verkefnum og kynna þau fyrir bæjarbúum og gestum yfir sumartímann. Skapandi sumarstörf, sem rekin eru sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar og Nýsköpunarseturs, er ætlað sem stökkpallur fyrir ungt listafólk til að þróa sig áfram í sinni list, þjálfa sig í að vinna sjálfstætt og koma listsköpun sinni á framfæri.

Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 18-25 ára. Við val á verkefnum verður meðal annars tekið tillit til raunhæfni og frumleika verkefnisins, fjárhagsáætlunar, fjölbreytni verkefna, kynjahlutfalli umsækjenda og gæði umsókna. Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Hægt er að fá aðstoð við skrif umsóknar hjá starfsmönnum Nýsköpunarseturs í gegnum netfangið [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð er að:

  • Vinna eftir eigin framkvæmdar- og verkáætlun
  • Starfsfólk sé virkt á samfélagsmiðlum og að kynna verkefnið
  • Vera í samstarfi og samráði við aðra þátttakendur í Skapandi sumarstörfum
  • Halda vinnudagbók og mæta á alla fundi sem starfsmenn Nýsköpunarseturs skipuleggja
  • Koma fram á skipulögðum viðburðum á vegum Hafnarfjarðarbæjar líkt og 17. júní o.fl.
  • Taka virkan þátt í uppskerudögum Skapandi sumarstarfa haustið 2025 eða með einum eða öðrum hætti sýna afrakstur og útkomu verkefnis að kostnaðarlausu fyrir bæjarbúa.

Senda þarf neðangreindar upplýsingar og fylgigögn með sem viðhengi með umsókn:

  • Greinargóð lýsing á verkefninu, umfangi þess og markmiðum
  • Tíma- og verkáætlun
  • Fjárhagsáætlun
  • Upplýsingar um alla aðstandendur verkefnisins og tilgreina einn tengilið verkefnisins

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2025.

Athugið að aðeins er um laun að ræða en ekki önnur fjármögnun á verkefninu. Verkefni standa straum af öllum tilfallandi framleiðslukostnaði sjálf.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Hlíf stéttarfélag.

Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar, forstöðumaður Nýsköpunarseturs og starfsmenn Nýsköpunarseturs sitja í valnefnd sem skilar niðurstöðum fyrir 15. apríl 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Steina Friðgeirsdóttir, forstöðumaður Nýsköpunarseturs, í gegnum tölvupóstinn [email protected].

Heildartímafjöldi eru 208 tímar og gert ráð fyrir að verkefnið sé unnið í 7 vikur á tímabilinu júní-júlí.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published25. February 2025
Application deadline31. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (23)
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Félagsráðgjafi í ráðgjafarteymi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari/þroskaþjálfi - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Leikskólinn Norðurberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar Vinnuskóla – sumarstörf
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstörf fyrir ungmenni fædd 2007 og eldri
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri fjölmenningar, Þjónustu- og þróunarsvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þróunarfulltrúi grunnskóla - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarfsmaður óskast til starfa í Geitungana
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarf á heimili fyrir fatlaðan einstakling - Lundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarf á heimili fyrir fatlaðan einstakling - Hamrar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Hlíðarendi
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Leikskóla- og frístundaliði - Norðurberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstörf í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Öldugata
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Forfallakennari - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarf á fjármálasviði
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Óskað er eftir sumarstarfsmanni á Læk athvarf
Hafnarfjarðarbær