

Sumarstarf á heimili fyrir fatlaðan einstakling - Lundur
Sumarstarf
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í sumarstarf á heimili fyrir fatlaðan einstakling, sem staðsett er í Setberginu. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi 60-90% starf í vaktavinnu, unnið er kvöld, dag og nætur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita íbúa stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til ýmissa tómstunda
- Sinna heimilisstörfum
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum kostur
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður í síma: 565-5100, netfang: [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknarfrestur 13. mars 2025
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins



































