Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk í sumarafleysingu - Svöluás

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Svöluási í Áslandshverfi. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf, sem unnið er á morgun- kvöld-, og helgarvöktum.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Sinna heimilisstörfum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
  • Reynsla af sambærulegu starfi æskileg

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veita Birna Guðmundsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi, netfang: [email protected] og Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir, sérfræðingur, netfang: [email protected] sími: 565-0301

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2025

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Advertisement published13. March 2025
Application deadline26. March 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (21)