

Stuðningsfulltrúi í sumarafleysingu á Laugavegi 105
Íbúðakjarninn að Laugavegi 105 óskar eftir að ráða öfluga stuðningsfulltrúa í sumarafleysingu. Fjölbreytt starf með skemmtilegu fólki.
Markmið starfseminnar er að veita einstaklingum með fjölþættan vanda stuðning við sjálfstæða búsetu. Starfsemin byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um einstaklingsmiðaða þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum. Unnið er eftir aðferðum Þjónandi leiðsagnar, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og valdeflingu. Þjónustan miðast við að auka sjálfstæði, efla færni og lífsgæði notenda.
Leitast er eftir að skapa jákvætt og heilsueflandi starfsmannaumhverfi sem skilar sér í þjónustu við íbúa. Tekið er vel á móti nýju starfsfólki.
Laugavegur 105 er sólarhringsheimili og um er að ræða vaktavinnu, dag-, kvöld- og helgarvaktir. Viðkomandi þarf að geta unnið allar tegundir af vöktum. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir nánara samkomulagi.
- Samstarf við notendur og aðstandendur.
- Hvatning og stuðningur til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
- Þátttaka í sköpun og þróun nýrra tækifæra fyrir þjónustunotendur.
- Eftirfylgd þjónustuáætlana og verklagsreglna undir verkstjórn teymisstjóra og forstöðumanns í samstarfi við þjónustunotendur.
- Að sinna umönnun og vera vakandi fyrir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
- Einstaklingsmiðaður stuðningur við heimilishald og athafnir daglegs lífs.
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með flóknar og fjölbreyttar þjónustuþarfir æskileg.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með hegðunarvanda einnig æskileg.
- Góð hæfni og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
- Íslenskukunnátta B1 í samræmi við samevrópskan matskvarða.
- Ökuréttindi B.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.






































