

Umsjónarmaður fasteigna Í Hafnarborg
Hafnarborg óskar eftir umsjónaraðila fasteigna í 50% starf
Hafnarborg menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar stendur fyrir metnaðarfullu menningarstarfi, myndlistarsýningum, fræðslu og öðrum viðburðum, auk þess sem tónleikahald er fastur liður í starfseminni. Leitað er eftir öflugum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér ábyrgð og daglega umsjón með varðveislu- og safnhúsnæði safnsins, viðhaldi og rekstri öryggiskerfa, tæknilegri framkvæmd sýningaruppsetninga og viðburða. Um 50% starf er að ræða og unnið er í dagvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ábyrgð og eftirlit með varðveislu- og safnahúsnæði
- Umsjón með viðhaldi og samskipti við þjónustuaðila og iðnaðarmenn
- Tæknilegar lausnir og smíði vegna uppsetninga og niðurtöku sýninga í samráði við forstöðumann og verkefnastjóra sýninga
- Umsjón með viðhaldi á útilistaverkum safnsins
- Umsjón og ábyrgð með tækjabúnaði sýninga ásamt öryggis og orkukerfum safnsins
- Uppsetning búnaðar vegna viðburðahalds
- Önnur verkefni sem samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Iðn,- tækni eða háskólamenntun sem nýtist í starfi (B.A/B.S)
- Verklagni, nákvæmni, vandvirkni og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
- Þekking og reynsla af safnastarfi kostur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aldís Arnardóttir forstöðumaður í síma 585-5791, aldisa@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 25. mars n.k.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

































