

Skólastjóri - Öldutúnsskóli
Staða skólastjóra Öldutúnsskóla í Hafnarfirði er laus til umsóknar
Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst næstkomandi.
Öldutúnsskóli er heildstæður grunnskóli með um 600 nemendur í 1. - 10. bekk. Í skólanum er starfrækt frístundaheimili fyrir nemendur í 1.-4. bekk og félagsmiðstöð fyrir eldri nemendur.
Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga sem býr yfir víðtækri þekkingu á skólastarfi, hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu námsumhverfi og getu til að leiða skólann áfram undir einkunnarorðum hans; virðing - vellíðan - virkni.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita skólanum faglega forystu og leiða fjölbreytt og skapandi skólastarf í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Hafnarfjarðarbæjar í menntamálum
- Bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans
- Vera í samvinnu við fræðsluyfirvöld í sveitarfélaginu um stefnumótun og ákvarðanatökur
- Fylgja eftir og þróa framsækna sýn, stefnu og skólamenningu í samstarfi við starfsfólk, nemendur og foreldra
- Þekkja vel til og bera ábyrgð á starfsmannamálum þ.e. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun
- Stuðla að framförum, árangri, velferð og vellíðan nemenda og starfsfólks
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða menntunarfræða
- Kennslu- og stjórnunarreynsla í grunnskóla áskilin
- Reynsla af faglegri forystu á sviði skólamála grunnskóla
- Leiðtogahæfni og vilji til að stuðla að eigin starfsþróun og annarra
- Haldgóð reynsla og þekking af starfsmannamálum
- Reynsla og þekking á áætlanagerð, rekstri og góðri fjármálastjórnun
- Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Skipulagshæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni í upplýsingatækni
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Hafnarfjarðarbær vinnur eftir verklagi um snemmtækan stuðning við leik- og grunnskólabörn sem kallast Brúin. Í því er lögð áhersla á samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur á fyrri stigum með aukinni samvinnu aðila í nærumhverfinu, sbr. lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2025.
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi grunnskólastjóra ásamt afriti af prófskírteinum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórunn Jóna Hauksdóttir, deildarstjóri grunnskólamála, í síma 585-5800 og [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.



































