

Flataskóli óskar eftir deildarstjóra
Flataskóli auglýsir eftir deildarstjóra í fullt starf frá 1. ágúst 2025. Um er að ræða framtíðarstarf.Í Flataskóla starfa um 300 nemendur í 1. - 7. bekk og um 50 starfsmenn. Þar ríkir faglegur metnaður og námsmenning leiðsagnarnáms er þar leiðandi. Skólinn er einnig Réttindaskóli Unicef og rík áhersla er lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti milli allra aðila skólasamfélagsins.
Gott andrúmsloft, umhyggja og góður námsárangur er sameiginlegur metnaður starfsfólks. Í skólanum er gott samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi.Sýn Flataskóla er að í skólanum sé ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa.
Áhersla á S-in fimm seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd á að vera sýnileg í öllu okkar starfi.
- Er tengiliður í þágu farsældar barna
- Vinnur með og undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
- Er hluti af stjórnunarteymi grunnskólans
- Vinnur með foreldrafélagi að samvinnu heimilis og skóla
- Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum
- Sinnir kennslu á viðkomandi skólastigi skv. kjarasamningi SÍ
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Ber ábyrgð á teymisfundum og stýrir þeim
- Er tengiliður við heimili í nemendamálum
- Er tengiliður vegna Mentor
- Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Lágmark 90 námseiningar á einu sviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg
- Áhugi og reynsla af leiðsagnarnámi æskileg
- Farsæl kennslureynsla af yngsta og/eða miðstigi grunnskóla
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi á skólaþróun
- Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð tölvukunnátta












