

Flataskóli óskar eftir umsjónarkennara
Flataskóli auglýsir eftir metnaðarfullum umsjónarkennar í fullt starf frá 1. ágúst 2025. Um er að ræða afleysingu vegna fæðingarorlofs til eins árs.Í Flataskóla starfa um 300 nemendur í 1. - 7. bekk og um 50 starfsmenn. Þar ríkir faglegur metnaður og námsmenning leiðsagnarnáms er þar leiðandi. Skólinn er einnig Réttindaskóli Unicef og rík áhersla er lögð á jákvæð og uppbyggileg samskipti milli allra aðila skólasamfélagsins.
Gott andrúmsloft, umhyggja og góður námsárangur er sameiginlegur metnaður starfsfólks. Í skólanum er gott samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi.Sýn Flataskóla er að í skólanum sé ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa.
Áhersla á S-in fimm seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og samkennd á að vera sýnileg í öllu okkar starfi.
- Skipuleggur nám og kennslu nemenda
- Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
- Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsmönnum
- Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Tekur þátt í teymisvinnu
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Áhugi og þekking á leiðsagnarnámi og skólaþróun
- Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg












