

Síðuskóli: Umsjónarkennari á yngsta stig
Í Síðuskóla er laus til umsóknar 100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi. Um er að ræða tímabundið starf skólaárið 2025-2026 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025.
Síðuskóli starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT-skólafærni, er Grænfánaskóli og Réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er unnið með hvatningu og hrós sem er góð leið til að sýna börnum jákvæða athygli, kenna þeim æskilega hegðun og viðhalda henni.
Í Síðuskóla er sérdeild fyrir einhverfa nemendur og þjónustar hún þá nemendur sem búsettir eru á Akureyri og hlotið hafa einhverfugreiningu.
Í Síðuskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vináttu.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.siduskoli.is
Kennari sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjórnendum.
Umsjónarkennari hefur umsjón með hópi nemenda í árgangi og kemur að öllum þeirra málefnum innan skólans.
- Kennaramenntun og leyfi til kennslu í grunnskóla.
- Áhugi á skólastarfi og vinnu með börnum.
- Reynsla af vinnu með börnum.
- Frumkvæði og samstarfsvilji.
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Geta og vilji til að starfa í teymi með öðrum kennurum.
- Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmis starfinu.


















