
Kennarar í Sandgerðisskóla skólaárið 2025-2026
Sandgerðisskóli auglýsir eftir kennurum í eftirfarandi lausar stöður fyrir skólaárið 2025-2026.
- Kennari í sjónlistum
- Kennari á yngsta stigi
- Kennari á miðsstigi
- Kennari á unglingastigi
Sandgerðisskóli leitar að metnaðarfullum kennurum sem vilja ná góðum árangri í skólastarfi. Ráðið er í stöðurnar frá 1.ágúst 2025.
Í Sandgerðisskóla er lögð áhersla á vellíðan og framfarir nemenda, gott samstarf innan skólans og við samfélagið. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn að setja sig inn í starfshætti skólans, vinna í teymi að því að mæta ólíkum einstaklingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt.
Sandgerðisskóli er vel búinn, heildstæður fjölmenningarlegur grunnskóli með um 320 nemendur og við skólann starfar samheldinn hópur metnaðarfullra starfsmanna. Áhersla er lögð á náið samstarf er við Leikskólann Grænuborg, félagsmiðstöðina Skýjaborg og Tónlistarskóla Sandgerðis. Gildi skólans eru; vöxtur – virðing – vilji – vinátta.
Skólinn er heilsueflandi grunnskóli sem vinnur eftir stefnu Uppeldis til ábyrgðar með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans, www.sandgerdisskoli.is
- Leyfisbréf kennara (fylgi með umsókn)
- Reynsla af kennslu í grunnskóla kostur
- Metnaður og einlægur áhugi á að vinna með börnum og unglingum á faglegan, fjölbreyttan og skapandi hátt
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi og metnaður fyrir góðum foreldrasamskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Skapandi hugsun og áhugi á að starfa í metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði



















