
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Þjónustu- og menningarsvið: Sérfræðingur í skjalamálum
Þjónustu- og menningarsvið óskar eftir því að ráða sérfræðing til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði skjalamála.
Sérfræðingur er hluti af öflugu teymi Þjónustu og þróunar sem ber meðal annars ábyrgð á þjónustuveri bæjarins, skjalamálum, vefstjórn, stafrænni þróun og innleiðingu umbótaverkefna á sviði stjórnsýslu og notendamiðaðrar þjónustu.
Um fullt starf er að ræða með sveigjanlegum vinnutíma. Meginstarfsstöð er í Ráðhúsinu á Akureyri en möguleiki er að vinna stundum fjarri vinnustað. Starfið hefur í för með sér 36 stunda vinnuviku og frábært mötuneyti.
Ráðningin er tímabundin til eins árs með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Svörun fyrirspurna og skráning upplýsinga og skjala
- Leit og afgreiðsla, bæði úr skjalasafni og geymslum
- Aðstoð og ráðgjöf til stjórnenda og annarra starfsmanna bæjarins varðandi skjalamál og skjalakerfi
- Notendabreytingar í skjala- og fundakerfi og kennsla nýrra notenda
- Innsetning efnis á heimasíðu sem snýr að bæjarstjórn, svo sem dagskrá funda, tilkynningar og upptökur
- Aðstoð við skjalamál og innleiðing skjalakerfis í grunnskólum
- Þátttaka í þróunarstarfi í skjalamálum og í stafvæðingu þjónustuferla, t.d. umsókna í þjónustugátt
- Vinnur að undirbúningi rafrænna skila á skjölum til héraðsskjalasafns
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun (BA/BS)
- Reynsla af flokkun, skráningu og miðlun upplýsinga er æskileg
- Reynsla af innleiðingu stafrænna lausna og/eða þróun þjónustuferla er æskileg
- Reynsla af notkun á skjala- eða málakerfi er kostur
- Mjög góð tölvukunnátta er nauðsynleg
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku er nauðsynleg
- Sjálfstæð, nákvæm og skipulögð vinnubrögð eru nauðsynleg
- Mikil samskiptafærni og þjónustulund
- Frumkvæði og skapandi hugsun
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Advertisement published12. March 2025
Application deadline26. March 2025
Language skills

Required

Required
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
Tech-savvyImplementing proceduresHuman relationsIndependencePlanningComputer scientistCustomer service
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Netorka leitar að Vefforritara í sumarstarf!
Netorka hf.

Bókhaldsfulltrúi í fjárhagsbókhaldi
Avis og Budget

Network Engineer
Rapyd Europe hf.

Business Central Specialist
Embla Medical | Össur

Hugbúnaðarsérfræðingur
Retric ehf.

Forritari í viðskiptakerfum (Business Central)
Hagar

Ráðgjafi í viðskiptakerfum (Business Central)
Hagar

Bakendaforritari
Hagar

Viltu starfa í upplýsingatækni?
OK

Umbóta- og þróunarstjóri Kópavogsbæjar
Kópavogsbær

Forritari hjá Fons Juris - þróaðu Lögmennið!
Fons Juris ehf.

Prófdómari í ökuprófum á höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf