

Business Central Specialist
Embla Medical (Össur) leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að taka þátt í vegferð yfir í Business Central viðskiptakerfi.
Viðkomandi þarf að búa yfir reynslu í Business Central, þekkja helstu viðskiptaferla og hafa útsjónarsemi og lausnamiðaða hugsun að leiðarljósi. Við leitum að einstaklingi með reynslu af hönnun og útfærslu á viðskiptalausnum. Viðkomandi verður hluti af öflugu og reynslumiklu teymi sérfræðinga sem vinna að sameiginlegum markmiðum.
Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt verkefni í framsæknu tækniumhverfi.
-
Þarfagreining og hönnun á viðskiptalausnum
-
Þáttaka í innleiðingum á BC á alþjóðavísu
-
Samskipti við ytri verktaka
-
Samvinna við starfsstöðvar um allan heim
-
Rekstur á BC umhverfinu og tengdum viðskiptalausnum
-
Háskólapróf eða reynsla sem nýtist í starfi
-
Reynsla af hönnun og þróun hugbúnaðar
-
Þekking á AL forritunarmáli, extensions, API samþættingum
-
Þekking á helstu viðskiptaferlum Business Central
-
Reynsla af Saas uppfærslum
-
Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í hópi sérfræðinga
-
Metnaður og lausnamiðuð hugsun
-
Framúrskarandi samskiptahæfni og mjög góð enskukunnátta
-
Líkamsræktarstyrkur
-
Samgöngustyrkur
-
Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
-
Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
-
Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
-
Árlegur sjálfboðaliðadagur
- Sveigjanlegur vinnutími
- Starfsþróun
-
Öflugt félagslíf













