

Forritari hjá Fons Juris - þróaðu Lögmennið!
Fons Juris rekur stærsta lögfræðigagnasafn á Íslandi og hjálpar lögmönnum, lögfræðingum, og laganemum að nálgast upplýsingar um gildandi rétt í landinu á skilvirkan og snjallan hátt. Við notum nýjustu tæknilausnir, þar á meðal Lögmennið, gervigreindarlausn á sviði lögfræði, sem við höfum þróað frá grunni.
Við leitum að framsæknum og útsjónarsömum forritara til að ganga til liðs við okkur. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, allt frá viðhaldi og þróun á núverandi kerfum til þátttöku í mótun nýrra lausna – þar á meðal frekari þróun Lögmennisins.
Hvað bíður þín?
-
Vinna í framsæknu og skapandi umhverfi með áherslu á sjálfstæði og fagmennsku.
-
Öflugur stuðningur við starfsþróun og tækifæri til að dýpka þekkingu á nýjustu tækni.
-
Áhrif á þróun og mótun gervigreindarlausna í lögfræðigeiranum.
Helstu verkefni:
-
Vefskrap (scraping) til að sækja upplýsingar úr dómum, fræðiritum og öðrum heimildum.
-
Forritun og þróun kerfa Fons Juris.
-
Viðhald og þróun viðbóta og eldri kerfishluta.
-
Þátttaka í áframhaldandi þróun Lögmennisins.
-
Samþætting við önnur kerfi.
Hæfniskröfur:
-
BS gráða í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg reynsla.
-
Þekking á Python (nauðsynleg).
-
Reynsla eða þekking á gervigreind er einnig kostur.
-
Reynsla eða þekking á vefþróun er kostur.
-
Reynsla eða þekking á React, Vue eða Svelte er einnig kostur.
-
Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð.
Hjá Fons Juris er mikið af spennandi verkefnum framundan. Ef þú vilt taka þátt í að byggja upp tækni sem mótar framtíð lögfræðinnar, þá er þetta starfið fyrir þig!
📩 Nánari upplýsingar:
Einar B. Sigurbergsson, framkvæmdastjóri
📧 [email protected]
Umsóknarfrestur: 21. Mars 2025












