

Starfsmaður óskast til starfa í Geitunga - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í ört stækkandi starf Geitungana sem er vinnu og virkni úrræði fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi,lærdómsríkt og framsækið 100% starf með fjöbreyttum verkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Stuðla að virkni og félagslegri þátttöku fatlaðs fólk í samfélaginu
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
Umsóknarfrestur er til 28.mars 2025
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi. [email protected] eða í síma: 565-5100
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins



































