Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Teymisstjóri í íbúðakjarna fyrir fatlað fólk

Velferðarsvið Kópavogsbæjar auglýsir eftir teymisstjóra í íbúðarkjarna fyrir fatlað fólk.

Starfið felst í persónulegum stuðningi og þátttöku í faglegu starfi í samvinnu við forstöðumann, deildarstjóra og aðra teymisstjóra.

Um er að ræða sex íbúða kjarna þar sem áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða þjónustu og valdeflandi samskipti í samræmi við hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.

Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu, tímabundið til eins árs til að byrja með.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veitir stuðning við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
  • Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
  • Hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa í sínu teymi og tryggir að starfsemin mæti þeim.
  • Gerð einstaklingsáætlana og verkferla.
  • Sinnir vaktstjórn og utanumhaldi daglegrar þjónustu við íbúa.
  • Tekur þátt í fræðslu og þjálfun starfsfólks samkvæmt faglegum áherslum velferðarsviðs. Veitir starfsfólki leiðsögn og ráðgjöf um framkvæmd þjónustu við íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun BA/BS í mennta-, heilbrigðis-eða félags-og mannvísindum.
  • Reynsla og þekking á starfi með fötluðu fólki.
  • Þekking á meginhugmyndum er birtast í lögum um málefni fatlaðs fólks.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í starfi.
  • Gott líkamlegt ástand.
  • Ökuréttindi æskileg.
Fríðindi í starfi
  • Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugar bæjarins.
Advertisement published17. March 2025
Application deadline6. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Public administrationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags