

Þroskaþjálfi- Engidalsskóli
Engidalsskóli óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í 70% starf
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir um áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk.
Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er að taka fyrstu skrefin í leiðsagnarnámi. Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestranám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg
Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinna með nemendum með þroska- og hegðunarfrávik.
- Gera áætlanir, sinna þjálfun, vinna með félagsfærni, aðlaga námsefni og námsaðstæður í samvinnu við fagfólk og foreldra.
- Starfið felur í sér ábyrgð á velferð barna í samvinnu við foreldra og fagfólk.
- Gerir einstaklingsáætlun/námsskrá fyir nemendur í samráði við aðila innan innan skólans og foreldra/forsjáraðila og aðra sem við á hverju sinni.
- Vinnur eftir stefnu skólans og samþykktir Hafnarfjarðar.
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
- Geta til að vinna undir álagi og aðlagast breyttum aðstæðum.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á svið þroskaþjálfunar og starfsleyfi til að vinna sem slíkur (starfsleyfi fylgi umsókn).
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
- Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi.
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Stundvísi og samviskusemi.
- Góð íslensku kunnátta
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir skólastjóri, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2025
Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélags Íslands.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.











































