

Sumarstarf - Tómstund
Auglýst er eftir tómstundaleiðbeinendum til að sinna Tómstund. Um er að ræða 100% starf. Tómstund er fjölbreytt sumarnámskeið fyrir nemendur sem voru að ljúka 4.–7. bekk. Tómstund verður starfrækt í Skarðshlíðarskóla og Öldutúnsskóla og er starfstímabilið frá 2. júní - 9. júlí.
Helstu markmið Tómstundar eru að virkja börn í sumarfríinu, gefa þeim tækifæri á að hitta önnur börn, kynnast áhugaverðum viðfangsefnum og endurvekja gömul áhugamál. Tómstundaleiðbeinendur sjá um að skipuleggja starfið og halda fjölbreyttar smiðjur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá
- Mikil samskipti og samvinna við börn
- Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum
- Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan
- Vinnur að upplýsingaflæði til barna, foreldra og samstarfsaðila
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu tómstundaleiðbeinanda
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva er kostur
- Íslenskukunnátta
- Stundvísi, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Almenn tölvukunnátta
Skilyrði er að viðkomandi geti framvísað hreinu sakavottorði fyrir ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stella Björg Kristinsdóttir, Fagstjóri frístundastarfs og forvarna ([email protected])
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2025.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.














































