Sveitarfélagið Vogar
Sveitarfélagið Vogar
Sveitarfélagið Vogar

Heilsuleikskólinn Suðurvellir auglýsir eftir kennurum

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður skólaárið 2025-2026:

  • Leikskólakennara
  • Leikskólakennara í sérkennslu / þroskaþjálfi
  • Deildarstjóra

Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir viðmiðum Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur. Virðing, umhyggja, samvinna og gleði eru leiðandi hugtök í leikskólanum og rík áhersla er lögð á gæði í samskiptum. Yfirmarkmið leikskólans er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf kennara
  • Önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Umsóknarfrestur er til 13. apríl n.k. og sótt er um starfið á heimasíðu leikskólans.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands.

Vakin er athygli á að starfið hentar einstaklingum óháð kyni.

Allar nánari upplýsingar veitir Heiða Hrólfsdóttir leikskólastjóri í síma 440-6240.

Senda má fyrirspurnir á netfangið [email protected]

Advertisement published25. March 2025
Application deadline14. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Suðurgata 1-5, 190 Vogar
Type of work
Professions
Job Tags