Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Framleiðsluverkfræðingur | Manufacturing Engineer

Langar þig að vera hluti af öflugu og spennandi teymi innan stoðtækjaframleiðslu Össurar?

Össur leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að starfa sem framleiðsluverkfræðingur (e. Manufacturing Engineer) í koltrefja- og samsetningardeildinni á Íslandi. Framleiðsluverkfræðingar Össurar vinna að framleiðsluferlum stoðtækja, stöðugum umbótum og aukinni skilvirkni þeirra. Teymið er leiðandi í innleiðingu á umbótum. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og unnin í samstarfi við önnur teymi, svo sem vöruþróun, gæðadeild, innkaupadeild og vörustjóra.

Við leitum að skipulögðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir verkefnum sem bæta lífsgæði og hreyfanleika fólks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna við stöðugar umbætur á ferlum í framleiðslu  

  • Innleiða nýjar lausnir sem auka skilvirkni og gæði framleiðsluferla 

  • Innleiða breytingar á vörum í framleiðslu 

  • Vinna að gæðamálum í framleiðslu 

  • Útbúa og viðhalda verkferlum framleiðslunnar  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc. eða M.Sc. í verk- eða tæknifræði  

  • Brennandi áhugi á framleiðslu og umbótum ferla  

  • Þekking á straumlínustjórnun (e. Lean Manufacturing) er kostur 

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta  

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu 

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð  

  • Metnaður og jákvætt viðhorf  

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

Advertisement published31. March 2025
Application deadline14. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Professions
Job Tags