Háskóli Íslands
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands

Verkefnisstjóri í teymi rannsóknarinnviða

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra í teymi rannsóknarinnviða á Vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands, tímabundið til tveggja ára. Teymið styður við markvissa uppbyggingu rannsóknarinnviða innan Háskóla Íslands í samræmi við Rannsóknarinnviðaáætlun skólans.

Markmið starfsins er að straumlínulaga ferli styrkumsókna, innkaupa og eignaskráningar í þeim tilgangi að öðlast betri yfirsýn yfir rannsóknarinnviðaeign og þarfir rannsakenda. Starfið felur jafnframt í sér samstarf við rannsakendur við Háskóla Íslands og aðila innan stjórnsýslu skólans, auk aðkomu að umsýslu Tækjakaupasjóðs og Mótframlagasjóðs Háskóla Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gerð gagnagrunns úr Tækjakaupa- og Mótframlagasjóði skólans

  • Samræming upplýsinga frá umsóknum í Tækjakaupa- og Mótframlagasjóð til eignaskráningar rannsóknarinnviða

  • Þátttaka í umsýslu með umsóknum, mati og styrkveitingum úr Tækjakaupa- og Mótframlagasjóði

  • Aðkoma að skráningum rannsóknarinnviða Háskóla Íslands í skráningar-/bókunarkerfið Clustermarket

  • Aðkoma að bestun ferla og innleiðingu upplýsingtæknilausna á Vísinda- og nýsköpunarsviði

  • Samskipti við rannsakendur og rekstraraðila rannsóknarinnviða

  • Þátttaka í vinnuhópum og/eða teymisvinnu tengdum rannsóknarinnviðum

Hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi

  • Gott vald á upplýsingatækni og gagnagrunnsforritum s.s. Excel og Sharepoint listum og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði

  • Reynsla af notkun PowerBI er kostur

  • Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Samstarfshæfni og nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess

  • Staðfest afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Vísinda- og nýsköpunarsvið er eitt af þjónustu- og stoðsviðum sameiginlegrar stjórnsýslu Háskóla Íslands. Meginmarkmið vísinda- og nýsköpunarsviðs er að efla rannsóknir við Háskóla Íslands með almennum stuðningi við rannsóknir, nýsköpun, hagnýtingu, erlent samstarf og vísindastarf skólans.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20.03.2025

Nánari upplýsingar veitir

Eiríkur Stephensen, [email protected]

Auglýsing birt11. mars 2025
Umsóknarfrestur20. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sæmundargata 2, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar