
Þjónustustöð Mosfellsbæjar
Þjónustustöð Mosfellsbæjar sér um alla almenna þjónustu við bæjarbúa á sviði tækni- og umhverfismála, svo sem snjóruðning, viðhald og rekstur gatna, holræsa, veitna, umferðarmannvirkja og opinna svæða. Þjónustustöð sér einnig um viðhald á fasteignum bæjarins auk rekstur stærri tækja og bíla.
Undir starfsemi Mosfellsveitna heyra þau verkefni sem snúa að málefnum vatnsveitu, fráveitu og hitaveitu innan Mosfellsbæjar. Verkefnin eru eins fjölbreytt og þau eru mörg og snúa meðal annars að nýlögnum heimæða hita- og vatnsveitu ásamt almennu eftirliti, viðhaldi og endurnýjun veitumannvirkja.

Verkefnastjóri véla og tækja
Við hjá Þjónustustöð Mosfellsbæjar leitum að kraftmiklum og þjónustulunduðum verkefnastjóra til að sinna fjölbreyttum störfum með góðum hópi starfsfólks.
Verkefnastjóri véla og tækja ber ábyrgð á ökutækjum og vélum Þjónustustöðvar og sinnir vélavinnu sem krefst iðnmenntunar og meiraprófs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur eftirlit og umsjón með ökutækjum og vélum
- Hefur umsjón með löggiltum skoðunum á tækjum
- Sér um viðhald og viðgerðir á ökutækjum og vélum
- Sinnir eftirliti með færð og ástandi vega skv. áætlun
- Tekur bak- og útkallsvaktir skv. áætlun
- Sinnir snjómokstri og hálkuvörnum stíga
- Sinnir öðrum verkefnum Þjónustustöðvar eins og þarf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vélamaður skal hafa iðnmenntun innan vélvirkjunar, bifvélavirkjunar eða öðru sem nýtist við viðgerðir á vélum og ökutækjum
- Farsæl reynsla af áþekkum störfum
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á forritum eftir því sem við á hverju sinni.
- Góðir samskiptahæfileikar og skipulagshæfni
- Frumkvæði og jákvætt viðhorf
- Nákvæmni og samviskusemi
- Góð hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli, bæði á íslensku og ensku
- Hreint sakavottorð
- Meirapróf og vinnuvélaréttindi skilyrði
Auglýsing birt4. mars 2025
Umsóknarfrestur19. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Völuteigur 15, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðJákvæðniSamviskusemiSkipulagTeymisvinnaVélvirkjunÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Vörubílstjórar í snjómokstur
Heflun ehf

Bifvélavirki á ferð
BL ehf.

Bifvélavirki, skoðunarmaður
Aðalskoðun hf.

Vélvirki / Vélstjóri / Bifvélavirki
Stólpi

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Verkefnastjóri viðburða
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Starfsmaður í bifreiðaskoðun Sauðárkróki
Frumherji hf

Service Technician - Reykjavik
Tesla