

Verkefnastjóri fjárfestinga / Capital Projects Specialist
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum einstaklingi í spennandi starf verkefnastjóra fjárfestinga í framleiðsluþróunarteymi. Álver Alcoa Fjarðaáls er hátæknivætt og hefur stöðugar umbætur að leiðarljósi. Verkefnastjóri fjárfestinga stýrir fjölbreyttum fjárfestingarverkefnum frá undirbúningi til verkloka og sér til þess að verkefnin uppfylli gæðakröfur og séu unnin á öruggan hátt innan tímaramma og kostnaðaráætlana.
- Skilgreina og skipuleggja fjárfestingarverkefni
-
Áætla framkvæmdatíma, mannaflaþörf og kostnað
-
Afla samþykkis og fjármögnunar fyrir verkefni
-
Tryggja að verkefni samræmist stefnu, stöðlum og reglum Alcoa
-
Vinna útboðsgögn og annast samskipti við birgja og verktaka
-
Tryggja gott upplýsingaflæði og fylgja eftir framkvæmd verkefna
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
-
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
-
Skipulagshæfileikar og samskiptahæfileikar
-
Gott vald á íslensku og ensku
- Gott mötuneyti
- Rútuferðir til og frá vinnu
- Velferðaþjónusta













