Akureyri
Akureyri
Akureyri

Velferðarsvið: Ráðgjafi við móttöku flóttafólks

Laus er til umsóknar tímabundin 100% staða ráðgjafa í samræmdri móttöku flóttafólks á velferðarsviði á Akureyri. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Vilt þú taka þátt í að styðja og leiðbeina fólki í átt að nýju upphafi?

Á velferðarsviði Akureyrarbæjar er rekin fjölbreytt velferðarþjónusta samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, barnaverndarlögum, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og lögum um málefni aldraðra. Hlutverk sviðsins er að bjóða upp á ráðgjöf og beita úrræðum auk þess sem sviðið rekur þjónustukjarna og vinnustaði fyrir fatlað fólk. Þjónustusvæðið nær yfir Akureyri, Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Grýtubakkahrepp og Svalbarðsstrandarhrepp skv. þjónustusamningum við sveitarfélögin um ráðgjafarþjónustu og samningi sveitarfélaganna um málaflokk fatlaðra.

Ráðgjafi í móttöku flóttafólks starfar innan félagsþjónustunnar og veitir ráðgjöf við flóttafólk út frá samningi um samræmda móttöku flóttafólks sem liggur fyrir. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði valdeflingar í að styrkja stöðu flóttafólks er sest að á Akureyri með hjálp til sjálfshjálpar að leiðarljósi.

Næsti yfirmaður er forstöðumaður félagsþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir málstjórn fyrir einstaklinga og fjölskyldur.
  • Upplýsingagjöf og leiðbeiningar um félagsleg réttindi.
  • Grunnmat á þörfum einstaklinga.
  • Gerð, framkvæmd og eftirfylgni einstaklingsáætlana með inngildingu að meginmarkmiði.
  • Stuðningur vegna félagslegs og persónulegs vanda.
  • Móttaka og afgreiðsla umsókna um fjárhagsaðstoð.
  • Tengir einstaklinga við helstu kerfi (s.s. menntakerfi og heilbrigðiskerfi) og skapa tengingu við ýmsar stofnanir s.s. Vinnumálastofnun.
  • Húsnæðisleit og öll umsýsla tengd flutningum, húsbúnaði og leigu.
  • Situr í teymum bæði innan velferðarsviðs og utan s.s. við samstarfsaðila og opinberar stofnanir.
  • Sinnir málstjórn skv. lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
  • Ritun dagnóta eftir samskipti og viðtöl á skrifstofu, öðrum stofnunum eða á heimili skjólstæðings.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun (BA/BS/B.Ed) sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur.
  • Þekking og reynsla af vinnu með flóttafólki eða fólki í viðkvæmri stöðu æskileg.
  • Samskiptafærni.
  • Gerð er krafa um frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Þekking og reynsla af þverfaglegri samvinnu er æskileg.
  • Góð færni til að tjá sig á ensku bæði í ræðu og riti.
  • Kunnátta í öðrum tungumálum eins og arabísku, úkraínsku, rússnesku eða spænsku er kostur.
  • Íslenskukunnátta (B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
  • Bera virðingu fyrir flóttamönnum og réttindum þeirra.
  • Hafa áhuga á að leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna og auka lífsgæði þeirra einstaklinga sem verið er að styðja.
  • Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Glerárgata 26, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar