Akureyri
Akureyri
Akureyri

Sumarstörf Velferðarsvið: Karlar í velferðarþjónustu

Langar þig að kynnast nýju fólki og sjálfum þér betur í leiðinni? Mæta í vinnuna þar sem enginn dagur er eins og hafa gaman?

Velferðarsvið Akureyrarbæjar leitar að kraftmiklum og jákvæðum karlmönnum í sumarafleysingar sumarið 2026. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtileg störf þar sem mannleg samskipti og umhyggja eru í forgrunni. Ef þú vilt upplifa sumar sem skiptir máli – þá er þetta tækifærið!

Í boði eru fjölbreytt og skemmtileg störf í vaktavinnu, þar sem unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Góð liðsheild á starfsstöðvum okkar spilar stóran þátt í því að fólki líði vel og að veitt sé góð þjónusta. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og valdeflingu.

Velferðarsvið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk. Lögð er áhersla á að efla og styðja notendur þjónustunnar til sjálfsbjargar og sjálfstæðis.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfsfólk okkar sinnir ólíkum einstaklingum í fjölbreyttu og skemmtilegu umhverfi:

  • Stuðningur við fatlað fólk til að lifa sem eðlilegustu lífi. Starfsstöðvar eru íbúðakjarnar, íbúðir með þjónustu eða sambýli.
  • Aðstoð til eldri borgara og öryrkja við athafnir daglegs lífs.
  • Stuðningur við fötluð börn og ungmenni í tímabundinni dvöl í skammtímaþjónustu Brekkukots.
  • Starf í sumarvistun með fötluðum börnum og aðstoð til þeirra við að njóta menningar-, tómstunda- og félagslífs.
  • Starf í athvarfinu Laut, fyrir fatlað fólk sem miðar að þátttöku þeirra í félagslífi.
  • Starf á fjölskylduheimilinu Sólbergi þar sem fram fer greiningar- og þjálfunarvistun fyrir börn og foreldra þeirra.
  • Unnið er eftir þjónustuáætlun, þjálfunaráætlun og/eða dagskipulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfileiki og áhugi á að starfa með fólki.
  • Stundvísi, sveigjanleiki, samviskusemi, góðvild, gagnkvæm virðing og jákvætt viðhorf til fólks.
  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur og skal tekið fram í umsókn.
  • Geta til að vinna undir álagi og taka sjálfstæðar ákvarðanir.
  • Gott líkamlegt atgervi.
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt14. janúar 2026
Umsóknarfrestur8. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar