Akureyri
Akureyri
Akureyri

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Frístundaleiðbeinandi í tómstundastarfi, Birta og Salka

Hefur þú áhuga á leirlist? Ert þú laginn í höndunum og átt auðvelt með að umgangast fólk? Þá erum við að leita að þér!

Fræðslu- og lýðheilsusvið óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinanda í félags- og tómstundastarf í Birtu og Sölku sem eru félagsmiðstöðvar fólksins, fyrir fullorðna (18+). Þær eru staðsettar í Víðilundi 22 og Bugðusíðu 1.

Starfshlutfall er 80% og er um ótímabundið starf að ræða.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst en alltaf er um samkomulagsatriði að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hafa heildarsýn yfir starfsemi staðarins samkvæmt skipulagi námskeiða og opins starfs með áherslu á yngri hóp staðarins 18 – 50 ára.
  • Gera styttri starfsáætlanir og skipuleggja daglegt starf í samráði við aðra starfsmenn og almenna framkvæmd fyrir tómstundastarfið t.d. auglýsingar.
  • Skipuleggja og leiðbeina á námskeiðum og í opnu starfi.
  • Hefur umsjón með leirstofu og leirnámskeiðum ásamt öðrum starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla á sviði smíða, myndlistar, leirlistar, hannyrða eða öðru handverki er krafa.
  • Áhugi á því að vinna með leir er krafa.
  • Reynsla á sviði myndlistar er kostur.
  • Góð tölvukunnátta nauðsynleg t.d. við gerð bæklinga og vinnu við samfélagsmiðla.
  • Starfið krefst sjálfstæðis og frumkvæðis í vinnubrögðum.
  • Samskiptafærni, sveigjanleiki og rík þjónustulund.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
  • Hreint sakavottorð.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur16. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar