
Tandur hf.
Fyrirtækið Tandur var stofnað í Reykjavík þann 9. ágúst 1973.
Starfsemi fyrirtækisins snýst um framleiðslu, sölu og dreifingu á hreinlætisvörum og búnaði til fyrirtækja og opinberra stofnana. Samhliða framleiðslu, sölu og innflutningi er mikil áhersla lögð á faglega og framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptaaðila.
Viðskiptavinum Tandur eru boðnar heildarlausnir varðandi þjónustu og vörur til hreinlætis. Má þar nefna gerð þrifaáætlana, uppsetningu sjálfvirkra skömmtunarbúnaða, reglulegt þjónustueftirlit, fræðslu, ráðgjöf og fjölda vöruflokka sem hafa með hreinsun og hreinlæti að gera.

Þjónusturáðgjafi – þjónustuver Tandur
Tandur leitar að þjónustulunduðum og skipulögðum þjónusturáðgjafa í þjónustuver fyrirtækisins. Starfið er fjölbreytt og felur í sér dagleg samskipti við viðskiptavini ásamt almennum skrifstofustörfum.
Þjónusturáðgjafi gegnir lykilhlutverki í að tryggja góða upplifun viðskiptavina og er oft fyrsti snertiflötur þeirra við fyrirtækið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun og samskipti við viðskiptavini
- Svara tölvupóstum og fyrirspurnum
- Móttaka og utanumhald innkaupapantana
- Almenn þjónusta við viðskiptavini
- Auk almennra skrifstofustarfa
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Góð tölvukunnátta
- Þekking á Navision er mikill kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Rík þjónustulund og jákvætt viðhorf
- Skipulögð vinnubrögð og stundvísi
Starfið hentar fólki á öllum aldri
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur hádegisverður
- Heilsustyrkur
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur24. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hestháls 12, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Fyrirtækjaráðgjafi Símans
Síminn

Velferðarsvið: Ráðgjafi við móttöku flóttafólks
Akureyri

Customer Success Manager
Kara Connect

Viltu starfa í upplýsingatækni?
OK

Óskum eftir þjónustufulltrúa í frábært teymi
Bílson

Sérfræðingur í vinnuvernd
Reykjavíkurborg: skóla- og frístundasvið

Sumarstarf í móttöku velferðarsviðs
Sumarstörf - Kópavogsbær

Umsjón lengri ferða - sumarstarf
Icelandia

Part Time Sales Assistant - Sports Direct - Akureyri
Sport Direct Akureyri

Sérfræðingur í Rannsóknaþjónustu
Háskólinn í Reykjavík

Móttökuritari á heilsugæslu
Heilsugæslan Kirkjusandi

Sölu- og þjónustufulltrúi á skrifstofu
Casalísa