Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Sérfræðingur í Rannsóknaþjónustu

Háskólinn í Reykjavík (HR) óskar eftir að ráða öflugan og skipulagðan sérfræðing til starfa í teymi Rannsóknaþjónustu HR. Í þessu lykilhlutverki mun starfsmaður styðja rannsakendur við fjármögnun og framkvæmd rannsókna, annast skráningu rannsóknaafurða, sinna samskiptum við rannsóknarsjóði og taka þátt í þróun ferla og tæknilausna fyrir Rannsóknaþjónustu HR. Starfsmaður heyrir undir forstöðumann Rannsóknaþjónustu HR og vinnur starf sitt í samstarfi og í samráði við hann.

STARFSSVIÐ

  • Aðstoð við rannsakendur við styrkjasókn og utanumhald rannsóknaverkefna. Í því felst meðal annars að vakta styrkjamöguleika, styðja við gerð umsókna, skýrslugerð og fjárhagsuppgjör vegna styrkta rannsóknarverkefna.
  • Þátttaka í þróun ferla og innleiðingu tæknilausna fyrir Rannsóknaþjónustuna.
  • Er tengiliður HR við innlenda og erlenda rannsóknasjóði.
  • Miðlun upplýsinga sem varða rannsóknir innan skólans og utan.
  • Gagnaöflun, skráning og skýrslugerð um rannsóknaafurðir.
  • Önnur störf í samráði við yfirmann

HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólagráða og reynsla af rannsóknum sem nýtist í starfinu.
  • Víðtæk þekking á innlendu og alþjóðlegu rannsóknastarfi (s.s. reynsla af undirbúningi samkeppnishæfra styrkumsókna, fjármögnun og utanumhaldi rannsóknaverkefna, skýrslugerð).
  • Mjög góð skipulagshæfni, nákvæmni og geta til að stýra mörgum verkefnum samtímis.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni á íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.
  • Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í samstarfi við akademíska starfsmenn og starfsmenn annarra stoðsviða.
  • Þekking á gæðamálum er kostur.

Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Með öllum umsóknum skal fylgja ferilskrá. Einnig er beðið um kynningarbréf þar sem umsækjendur rökstyðja ástæður þess að vera rétta manneskjan í starfið.

Starfið er laust þar til hæfur umsækjandi hefur verið ráðinn.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir, Forstöðumaður Rannsóknaþjónustu, ([email protected]) eða mannauður, ([email protected]).

Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnað.

Auglýsing birt2. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AlþjóðasamstarfPathCreated with Sketch.FræðigreinarPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Skýrslur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar