Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands

Sérfræðingur í hagtölum um laun og tekjur

Hagstofa Íslands leitar að áhugasömum sérfræðingi í að greina gögn og miðla tölum um laun og tekjur á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst í að vinna, greina og sjá um birtingar á meðallaunum og dreifingu launa á íslenskum vinnumarkaði, vinna að þróunarverkefni um tölfræði veikindafjarvista, vinna sérsniðnar greiningar fyrir notendur auk aðkomu að öðrum verkefnum sem tengjast launatölfræði Hagstofu Íslands. Í starfinu er um að ræða skemmtilega blöndu krefjandi þróunarverkefna og reglubundinnar hagtölugerðar sem snúast um opinbera launatölfræði á Íslandi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð SQL kunnátta
  • Reynsla vinnu í R og/eða Python
  • Markverð reynsla af greiningu og miðlun talnaefnis
  • Góð tölfræðiþekking
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Þrautseigja og lausnamiðuð hugsun
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Geta til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Þekking á launum og launakerfum er kostur

Auglýsing birt2. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 21A, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.RPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar