

Framenda / Full stack forritari (Software Developer)
Ert þú drífandi, með góða forritunarkunnáttu og spennt/ur fyrir að vinna í sjálfstæðum litlum hópi að fjármálahugbúnaði framtíðarinnar? Þá erum við hjá Five Degrees að leita að þér til að hanna, þróa og reka hugbúnaðarkerfi okkar.
Vefir okkar eru að nýta Angular eða React í veflausnum okkar en við nýtum okkur fyrst og fremst Microsoft tækni, svo sem Azure, .net, C# og SQL Server, og erum stöðugt að leita nýrra leiða til að gera hlutina betur. Þar vonumst við til að þú getir orðið okkur að liði.
Til að koma til greina í starfið þarftu að hafa háskólagráðu í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegri grein, eða hafa mjög góða þekkingu og áralanga starfsreynslu af þeirri tækni sem við notum. Mikill kostur ef umsækjandi hefur reynslu eða áhuga á UI/UX hönnun og þróun.
Five Degrees á Íslandi
Five Degrees á Íslandi er leiðandi í gerð hugbúnaðar fyrir fjármálamarkað. Hugbúnaðurinn okkar er í notkun hjá flestum fyrirtækjum og stofnunum á íslenskum fjármálamarkaði. Hugbúnaðarlausnir Five Degrees einfalda alla umsýslu lána, verðbréfasafna, innlánsreikninga og greiðslusamninga.
Starfstöðvar á Íslandi eru tvær, í Kópavogi og á Akureyri. Á báðum stöðum er lagður mikill metnaður í gott starfsumhverfi og að verkefnin sem unnin eru séu bæði fjölbreytt og krefjandi.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Birna Sævarsdóttir, forstöðumaður hugbúnaðarþróunar, [email protected].
Íslenska










